Arctic Fish, Eykt og Eyvi taka saman höndum í stækkun seiðaeldsisstöðvar í Tálknafirði

ágúst 30, 2021

Arctic Smolt sem er dótturfélag laxeldisfyrirtækisins Arctic Fish ehf. á Vestfjörðum hefur samið um stækkun á seiðaeldisstöð fyrirtækisins í Norður-Botni í Tálknafirði við verktakafyrirtækið Eykt annars vegar og norska félagið Eyvi hins vegar, sem hannar og selur heildarlausnir í seiðaeldisstöðvar. Um er að ræða eina af stærstu framkvæmdum einkaaðila á Vestfjörðum en kostnaðaráætlun hljómar upp á um 3,5 milljarða. Færeyska fiskeldisráðgjafafyrirtækið SMJ Aqua var Arctic Fish til ráðgjafar í hönnunar og útboðsferlinu. „Við erum mjög ánægð með að fá Eykt og Eyvi að borðinu í þessu verkefni og að geta nú hafist handa við frekari uppbyggingu á Tálknafirði,“ segir Ragna Helgadóttir, verkefnastjóri framkvæmda hjá Arctic Fish ehf. Um er að ræða 4.200 fermetra nýbyggingu með samanlagt um 7.200 rúmmetra kerjarými. Eftir stækkunina verður hægt að ala um 1.000 tonn af seiðum í stöðinni árlega eða sem samsvarar um fimm milljónum 200 gramma stórra seiða. Úr þeim fjölda ætti að vera hægt að ala um það bil 25.000 tonn af laxi í sláturstærð. Framkvæmdir hefjast á næstu dögum um leið og byggingarleyfi hafa verið samþykkt en hönnun er langt komin. Gert er ráð fyrir að verktími verði um tvö ár og gera má ráð fyrir að um 40-50 manns muni koma að verkinu á framkvæmdatíma. „Við hjá Eyvi eru stolt og spennt yfir að hafa náð þessum samningi fyrir mjög kröfuharðan viðskiptavin,“ segir Heidi Kyvik, forstjóri Eyvi. „Sameiginlega munum við og Arctic Smolt þróa sérsniðna lausn sem hentar þörfum þeirra og aðstæðum á Íslandi. Í undirbúningsferlinu höfum við og félagið einbeitt okkur að því að finna lausnir sem tryggja öruggan rekstur og velferð seiðanna. Fiskeldisiðnaðurinn er að stækka hratt og þróast í átt að sjálfbærari kerfum. Eyvi hefur tekið virkan þátt í þessari þróun og við teljum Ísland vera áhugavert land fyrir okkur til að kanna frekar. Með því að tryggja ánægða viðskiptavini byggjum við upp orðspor Eyvi sem áreiðanlegs samstarfsaðila fyrir iðnaðinn.“ Verktakafyrirtækið Eykt mun sjá um að hanna og reisa bygginguna en Eyvi mun afhenda og setja upp allan búnað og tæki, s.s. vatnshreinsikerfi. Vatnið er endurnýtt og hreinsað til að hámarka vatnsgæði og velferð seiðanna. Við stöðina verður reist varaaflstöð með þremur 1,4 MW varaaflsvélum sem Aflhlutir ehf. mun afhenda og setja upp. „Það gleður okkur að fá tækifæri til að taka þátt í þeirri miklu uppbyggingu sem á sér stað vegna fiskeldis á Vestfjörðum. Eykt sér um hönnun mannvirkjanna, ásamt samræmingu og þjónustu gagnvart hönnun og uppsetningu á RAS kerfinu. Við erum mjög spennt að mæta vestur á Tálknafjörð og hefja þessa uppbyggingu,“ segir Páll Daníel Sigurðsson framkvæmdastjóri Eyktar. Í dag starfa um 70 manns hjá Arctic Fish en félagið er með um 10.000 tonn af laxi í sjó í þremur fjörðum. Gert er ráð fyrir að um 12.000 tonnum verði slátrað á þessu ári. Um fimmtán manns vinna í seiðaeldisstöð félagins og mun þeim fjölga lítillega við umrædda stækkun. „Við erum að stækka ört sem félag og stefnum að því að slátra um 24.000 tonnum innan þriggja ára. Til að mæta þeim vexti og áherslum okkar á stærri seiði sem eru styttri tíma í sjó er nauðsynlegt að ráðast í þessa fjárfestingu. Við erum fullviss um að þeir aðilar sem að við höfum fengið í lið með okkur deila þeirri hugsjón að byggja hátækni seiðaeldisstöð sem stenst samanburð við það besta sem gerist í heiminum. Þannig tryggjum við öflugt eldi,“ segir Stein Ove Tveiten forstjóri Arctic Fish.

The project is one of the largest private investment projects in the Westfjords, with an estimated cost of EUR 24 million. 4,200 square meters of new floorspace with a total of about 7,200 cubic meters of tank space will be added to the existing 10,000 square meters and 6,300 cubic meters of tanks. After the expansion, the station’s annual breeding capacity will be about 1,000 tons of smolt, or the equivalent of about five million 200-gram smolts. And from there it should be possible to farm approximately 25,000 tonnes of salmon.

Construction will begin shortly when the building permit has been granted. It is estimated that the construction phase will last about two years and that about 40-50 people will be involved in the project during construction.

“The Eyvi team is proud and excited to enter this agreement with a highly competent client. In collaboration with Arctic Smolt, we have developed a tailormade facility suited for their special requirements and the conditions in Iceland. During the collaboration phase we focused on optimizing solutions for safe and secure operations and fish health,” says Heidi Kyvik, CEO of Eyvi AS. “Eyvi is fully committed to assist the client to achieve optimal operation of the facility. Ensuring client satisfaction is how we build Eyvi’s reputation as a reliable partner for the industry”, says Kyvik.“The aquaculture industry is growing fast with high focus on sustainability. To take an active role in this trend we are constantly developing more sustainable solutions for land-based production. We consider Iceland as a highly interesting country for our further development” says Kyvik.

“We are pleased to have the opportunity to be part of the developments in fish farming in the Westfjords. Eykt will oversee the design of the civil work and construction, as well as coordinating and sourcing the building process. We are very excited to work in the Westfjords and Tálknafjörður and get this development underway”, says Páll Daníel Sigurðsson, CEO of Eykt.

Arctic Fish currently employs a staff of about 70 people with about 10,000 tons of salmon in the sea spread over three fjords. It is estimated that about 12,000 tonnes will be harvested this year. About fifteen people work in the company’s smolt production and the number will increase slightly with the planned expansion.

“We are growing rapidly as a company and aim to harvest about 24,000 tons within three years. In order to realize this growth and achieve a greater focus on larger smolt, which spend less time at sea, we want to undertake this expansion. We are confident that the people we have partnered with share our objective of building a state-of-the-art grow out facility, which will provide a foundation for robust aquaculture operations,” says Stein Ove Tveiten, CEO of Arctic Fish.

Related Posts