Search
1 MIN READ
mars 25, 2026

Ársskýrsla Arctic Fish 2025

Arctic Fish birti ársskýrslu sína fyrir árið 2025 í dag.
Á árinu 2025 slátraði Arctic Fish 14.791 tonnum af laxi og seldi félagið afurðir fyrir um 13 milljarða.
„Árið 2025 var metár hjá Arctic Fish á nokkrum lykilsviðum. Heildarslátrunin nam 14.791 tonni, sem er 39% aukning frá fyrra ári og 2.913 tonnum meira en fyrra met fyrirtækisins.
Frá því að Arctic Fish slátraði sínum fyrsta laxi árið 2019 hefur félagið slátrað samtals 68.140 tonnum. Á rúmum áratug höfum við byggt upp eitt stærsta fyrirtækið á Vestfjörðum og þannig lagt mikið af mörkum til uppbyggingar svæðisins. Samhliða starfsemi annarra laxeldisfyrirtækja á svæðinu hefur rekstur félagsins stutt við sterkari fjárhag sveitarfélaga, skapað störf og aukið efnahagsumsvif víða um Vestfirði.”
– Sagði Daníel Jakobsson, forstjóri Arctic Fish Holding.
Tengil á skýrsluna má finna hér