Search
1 MIN READ
júní 14, 2026

Boð á samráðs- og upplýsingafundi

Boð á samráðs- og upplýsingafundi

Arctic Sea Farm býður íbúum, hagsmunaaðilum, félagasamtökum, veiðifélögum og öðrum áhugasömum aðilum á samráðs- og upplýsingafundi um starfsemi fyrirtækisins.

Fundirnir eru hluti af reglulegu samráði Arctic Sea Farm við nærsamfélagið og hagsmunaaðila. Markmið fundanna er að kynna starfsemi félagsins, ræða áhrif hennar á nærumhverfið og skapa vettvang fyrir opið samtal þar sem fundargestir geta komið á framfæri spurningum, athugasemdum og ábendingum.

Á fundunum verður meðal annars farið yfir:

  • Starfsemi Arctic Sea Farm á svæðinu.
  • Umhverfis- og sjálfbærnimál.
  • Fiskheilbrigði og velferð.
  • Samfélagsleg áhrif starfseminnar.
  • Önnur málefni sem fundargestir óska eftir að ræða.

Fundur 1

Staður: Verbúðin Patreksfirði
Dagsetning: Fimmtudagur 18.6
Tími: 16:00

Fundur 2

Staður: Blábankinn Þingeyri
Dagsetning: Þriðjudagur 23.6
Tími: 16:00

Fundirnir eru opnir öllum áhugasömum og hvetjum við íbúa og aðra hagsmunaaðila til að mæta og taka þátt í umræðunni.

Þeir sem óska eftir frekari upplýsingum eða vilja koma á framfæri athugasemdum fyrir fundina geta haft samband við Arctic Sea Farm á netfangið gudmundur@afish.is