Search
2 MIN READ
mars 5, 2026

Egill Ólafsson er nýr framkvæmdastjóri eldis hjá Arctic Fish

Arctic Fish hefur gengið frá ráðningu Egils Ólafssonar í starf framkvæmdastjóra eldis hjá fyrirtækinu og tekur hann við starfinu 1. apríl næstkomandi.

Egill hóf störf hjá Arctic Fish árið 2015 og hefur gegnt starfi rekstrarstjóra sjóeldis frá árinu 2019. Hann tekur við starfinu af John Gunnar Grindskar sem mun taka við nýju hlutverki sem þróunarstjóri framleiðslu hjá fyrirtækinu.

Egill er meðal reyndustu starfsmanna hjá fyrirtækinu og hann hóf feril sinn á sjóeldissvæðum Arctic Fish. Í gegnum árin hefur hann gegnt nokkrum lykilstjórnunarstöðum og jafnframt aflað sér viðeigandi menntunar samhliða störfum sínum. Egill er vel í stakk búinn til að leiða eldisstarfsemi Arctic Fish inn í framtíðina enda hefur hann víðtæka þekkingu á rekstri, reynslu af stjórnun og sterkan bakgrunn í greininni.

„Við erum mjög ánægð að tilkynna ráðningu Egils,“ sagði Daniel Jakobsson, forstjóri Arctic Fish. „Hann býr yfir meira en áratugar reynslu af eldi á Vestfjörðum og hefur menntun við hæfi. Við erum stolt af því að geta ráðið í starfið innan fyrirtækisins og fengið til starfa stjórnendur með rætur í samfélaginu hér fyrir vestan.“

John Gunnar mun gegna framkvæmdastjóra stöðu sinni til 31. mars 2026 en mun strax í kjölfarið taka við nýrri stöðu innan fyrirtækisins. Í því hlutverki mun hann leggja áherslu á að styrkja staðbundna stjórnun í rekstrinum og halda áfram að samræma starfsemi Arctic Fish við gæðastaðla Mowi.

„Við erum mjög ánægð með að John Gunnar hafi ákveðið að halda áfram störfum hjá fyrirtækinu í þessu nýja hlutverki,“ sagði Daníel. „Með skýrari áherslu á umbætur í rekstri og miðlun þekkingar til starfsmanna okkar á sjó mun hann halda áfram vera verðmætur liðsstyrkur fyrir Arctic Fish til framtíðar.“