Meðhöndlun gegn Fiski- og Laxalús

október 13, 2022

Laxalús(Lepeoptheirus salmonis) og í minna mæli fiskilús(Caligus elongatus) eru með stærstu áskorunum í nútíma laxeldi. Almennt séð er staðan á Vestfjörðum góð þegar kemur að laxa-og fiskilús. Þar er helst að þakka náttúrulegum aðstæðum ásamt lyfjalausum forvörnum, svo sem lúsapilsum og lífrænum lúsavörnum(hrognkelsaseiði). Þrátt fyrir góða stöðu geta komið upp þær aðstæður að óæskilegt magn lúsa mælist í kvíastæðum. Lús og þá sérstaklega laxalús í miklu magni getur haft neikvæð áhrifa á vöxt laxfiska, þá getur hún valdið sárum á uggum og hreistri sem getur aukið líkur á sýkingum hjá eldisfiski. Það er því til mikils að vinna að halda lús í skefjum á eldissvæðum.

Þegar upp koma aðstæður sem þessar sækir Arctic Fish um leyfi til lyfjameðhöndlunar til Matvælastofnunar. Fiskisjúkdómanefnd tekur málið fyrir metur með tilliti til umhverfisskilyrða, fiskistærðar, stöðu lúsasmita og væntanlegrar þróunar á svæðinu. Allar umsóknir um notkun lyfja gegn Laxa-og fiskilús má finna undir fundargerðir Fisksjúkdómanefndar á heimasíðu Matvælastofnunar (https://www.mast.is/is/um-mast/nefndir-og-rad/fisksjukdomanefnd).

Nú ber svo við að meðhöndla þarf gegn lús í kvíastæðum okkar við Hvannadal í Tálknafirði, Kvígindisdal í Patreksfirði og Hvestudal í Arnarfirði. Áætlaður meðhöndlunartími er eftirfarandi:

Hvannadalur: 21.10 – 27.10 og 15.11-21.11.2022

Kvígindisdalur: 28.10 – 03.11.2022

Hvestudalur: 21.10 – 27.10.2022

Kvíastæðin verða merkt með gulu flaggi meðan á meðhöndlunatíma stendur í samræmi við ASC vottun Arctic Sea Farm.

Lyfjameðhöndlun verður með lyfinu SLICE vet. (Emamectin benzoate). Lyfið er vel þekkt og er löng reynsla á því í fiskeldi erlendis. Lyfjastofnun Íslands gerir ekki kröfu á biðtíma fyrir slátrun, sé ekki meðhöndlað oftar en einu sinni á seinstu 60 dögum eldistíma, enda sé öruggt að hámarks lyfjaleyfar í vefjum (e. Maximum Residue Limit / MRL) séu undir ásættanlegum gildum fyrir daglega inntöku (e. Acceptable Daily Intake / ADI).

Related Posts

Birting eftirlitsskýrslu MAST

Birting eftirlitsskýrslu MAST

Matvælastofnun hefur birt eftirlitsskýrslu vegna stroks sem varð hjá okkur í ágúst s.l. Þar er gerð grein fyrir tveimur alvarlegum...

Rannsókn lögreglunnar hætt

Rannsókn lögreglunnar hætt

Lögreglan á Vestfjörðum hefur tilkynnt okkur að rannsókn á stroki úr kví okkar í Patreksfirði hafi verið hætt. Ekki sé grundvöllur til að...