Starfsmaður í fjármáladeild Arctic Fish

september 4, 2019

Arctic Fish auglýsir eftir starfskrafti  í 100% starf á skrifstofu félagsins á Ísafirði, starfsmaðurinn yrði hluti af 5 manna fjármála- og bókhaldsdeild fyrirtækisins.

Starfslýsing

Launaútreikningar, launavinnslur og launamál.

Almenn bókhaldsstörf.

Þáttaka í gerð fjárhagsskýrslna og mánaðarskýrslna.

Undirbúningur bókhalds fyrir uppgjör og endurskoðun.

Þáttaka í áætlanagerð og eftirfylgni með áætlunum.

Kostnaðareftirlit

Hæfniskröfur

Viðskiptafræðimenntun er krafist  en önnur menntun einnig metin ef umsækjandi hefur reynslu af sambærilegum störfum.

Reynsla af áætlanagerð og framsetningu talnaefnis.

Skipulagshæfni til að geta staðið skil á verkefnum innan tilsetts tíma og hæfni til að geta unnið undir álagi.

Þekking á bókhaldskerfinu DK er æskileg .

Góð kunnátta á Office umhverfinu sérstaklega Excel.

Góð upplýsingatækni- og tölvukunnátta.

Góð enskukunnátta.

Góð samskiptahæfni.

 

Umsóknir

Umsóknir skal senda rafrænt með tölvupósti á Shiran Þórisson á nst@afish.is sem veitir einnig nánari upplýsingar um starfið. Umsóknum á að fylgja að hámarki 2 síðna starfsferilskrá.  Umsóknarfrestur er til og með 13. september næstkomandi.

Related Posts

Birting eftirlitsskýrslu MAST

Birting eftirlitsskýrslu MAST

Matvælastofnun hefur birt eftirlitsskýrslu vegna stroks sem varð hjá okkur í ágúst s.l. Þar er gerð grein fyrir tveimur alvarlegum...

Rannsókn lögreglunnar hætt

Rannsókn lögreglunnar hætt

Lögreglan á Vestfjörðum hefur tilkynnt okkur að rannsókn á stroki úr kví okkar í Patreksfirði hafi verið hætt. Ekki sé grundvöllur til að...