Afkoma Arctic Fish á fyrsta ársfjórðungi 2020

May 12, 2020

Afkoma Arctic Fish á fyrsta ársfjórðungi 2020

Eftir áralanga uppbyggingu Arctic Fish sem stofnað var 2011 hefur miklu fjármagni verið varið í grunnstoðir félagsins og aflað mikilvægrar þekkingu og reynslu við fiskeldið á Vestfjörðum. Hingað til hefur reksturinn verið fjárhagslega neikvæður en það gekk vel hjá Arctic Fish á fyrstu 6 vikum þessa árs sem skilar sér í jákvæðri afkomu á fyrsta ársfjórðung 2020. Góð verð á mörkuðum, samhliða góðum framleiðsluniðurstöðum úr eldinu sjálfu sköpuðu jákvæða afkomu. Afkoma félagsins var 795 þúsund evrur en framlegð úr rekstri fyrir fjármagnsliði var 1,6 milljón evrur. Félagið seldi um 860 tonn af slægðum laxi á fyrsta ársfjórðungi, en auk þess seldi félagið smáseiði til annara eldisfyrirtækja. Þrátt fyrir háan framleiðslukostnað á þessu uppbyggingarskeiði sem fyrirtækið er að fara í gegnum, þá er ánægjulegt að ná þeim áfanga að geta skilað jákvæðri rekstrarniðurstöðu.

Unnið er áfram markvisst í því að lækka framleiðslukostnað enda er hann hærri hér en í öðrum löndum þar sem laxfiskaeldi er stundað.  Einnig má benda á að flutningskostnaður á okkar helstu markaði er líka hærri en hjá samkeppnislöndum. COVID ástandið mun móta nána framtíð fyrirtækisins og því enn meiri þörf á að geta straumlínulagað reksturinn svo að framleiðslan í framtíðinni sé samkeppnishæf, jafnvel þótt að ófyrirséð áföll hafi neikvæð áhrif á markaðsaðstæður. Til lengri tíma litið gerir fyrirtækið ráð fyrir því að verð á mörkuðum nái jafnvægi og er fyrirtækið í góðu ferli með viðskiptabönkum sínum varðandi framtíðarfjármögnun fyrirtækisins. Eigendur félagsins hafa líka nýlokið við fjármögnun til félagsins, sem styrkir skammtímastöðu félagsins.

Félagið gerir ráð fyrir því að annar og þriðji ársfjórðungur ársins 2020 verði rekstrarlega erfiður vegna markaðsaðstæðna. Félagið gerir ráð fyrir því að afkoma félagsins og afurðaverð lagist í fyrsta lagi undir lok þessa árs.  Í heildina þá mun fyrirtækið selja um 8 þúsund tonn af eigin eldisafurðum. Eldisfiski sem er búið að ala frá eggi upp í markaðsstærð og verja nú þegar yfir 70% af heildarkostnaði afurðanna.

Þrátt fyrir þessa miklu markaðsóvissu til skemmri tíma þá er áætlað að halda óbreyttum áformum um úsetningu seiða núna snemma sumars og fram á haustbyrjun. Þá er strax farið að huga að frekari framtíðaruppbyggingu og eru eigendur félagsins vongóðir um langtímahorfur og vöxt fyrirtækisins.

Stein Ove Tveiten, framkvæmdastjóri Arctic Fish // Neil Shiran Þórisson, fjármálastjóri Arctic Fish

Nánari upplýsingar veitir, Neil Shiran Þórisson, fjármálastjóri Arctic Fish.

Related Posts

Birting eftirlitsskýrslu MAST

Birting eftirlitsskýrslu MAST

Matvælastofnun hefur birt eftirlitsskýrslu vegna stroks sem varð hjá okkur í ágúst s.l. Þar er gerð grein fyrir tveimur alvarlegum...

Rannsókn lögreglunnar hætt

Rannsókn lögreglunnar hætt

Lögreglan á Vestfjörðum hefur tilkynnt okkur að rannsókn á stroki úr kví okkar í Patreksfirði hafi verið hætt. Ekki sé grundvöllur til að...