Search
2 MIN READ
November 11, 2026

Meðhöndlun gegn Laxa- og fiskilús í Arnarfirði og Dýrafirði

Meðhöndla þarf gegn lús á kvíastæðum okkar við Kvígindisdal í Patreksfirði og Sandeyri í Ísafjarðardjúpi.

Áætlaður meðhöndlunartími er eftirfarandi:

Trostansfjörður frá 4.11.2026 þar til meðhöndlun er lokið.

Eyrarhlíð 1 frá 3.11.2026 þar til meðhöndlun er lokið.

Eyrarhlíð 2 frá 31.10.2026 þar til meðhöndlun er lokið

Lyfjameðhöndlun verður með efninu SliceVet lúsalyfi (Emamectin benzoat) Efnið er vel þekkt og er löng reynsla á því í fiskeldi erlendis. Lyfjastofnun Íslands gerir ekki kröfu á biðtíma fyrir slátrun, sé ekki meðhöndlað oftar en einu sinni á seinstu 60 dögum eldistíma, enda sé öruggt að hámarks lyfjaleyfar í vefjum (e. Maximum Residue Limit / MRL) séu undir ásættanlegum gildum fyrir daglega inntöku (e. Acceptable Daily Intake / ADI).  Ekki eru þekkt neikvæð heilbrigðis áhrif af efninu á lokavöru

Kvíastæðin verða merkt með gulu flaggi meðan á meðhöndlunartíma stendur í samræmi við ASC vottun Arctic Sea Farm.

Fiskisjúkdómanefnd hefur heimilað umbeðna lyfjameðhöndlun.

Allar umsóknir um notkun lyfja gegn Laxa-og fiskilús má finna undir fundargerðir Fisksjúkdómanefndar á heimasíðu Matvælastofnunar (https://www.mast.is/is/um-mast/nefndir-og-rad/fisksjukdomanefnd).

Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Ólafsson gæðastjóri Arctic Fish

gudmundur@afish.is